
Áfangastaðir 2013
| 10.-11. maí |
Vesturbyggð |
| 17. - 18. maí |
Sauðárkrókur |
| 24.-25. maí |
Fjarðabyggð |
Fréttir og viðburðir
- 15. maí. 2013
Háskólalestinni vel tekið í Vesturbyggð - 03. maí. 2013
Háskólalestin heldur í langferð um landið
- 29. sep. 2012
Háskólalestin fékk verðlaun RANNÍS

Undanfarin ár hefur Háskólalestin ferðast um landið við miklar vinsældir. Í lestinni er lögð áhersla á lifandi vísindamiðlun til ungs fólks og fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Viðtökur hafa verið með eindæmum góðar og fjölmenntu landsmenn á öllum aldri á viðburði Háskólalestarinnar.
Vorið 2013 leggur lestin af stað á ný með fræði og fjör fyrir landsmenn. Fyrirhugað er að heimsækja þrjá áfangastaði í maí: Patreksfjörð, Sauðárkrók og Fjarðabyggð.
Í Háskólalestinni verða valin námskeið úr Háskóla unga fólksins fyrir grunnskólanemendur, en að auki verður slegið upp litríkum vísindaveislum fyrir alla heimamenn með stjörnuveri, sýnitilraunum, eldorgeli, mælingum og pælingum, að ógleymdu Sprengjugenginu landsfræga.
Áhöfn Háskólalestarinnar þakkar landsmönnum ógleymanlegar viðtökur á liðnum árum og og býður alla hjartanlega velkomna í Háskólalestina.
Á kortinu eru sýndir áfangastaðir lestarinnar sumarið 2013.



