Af óviðráðanlegum orsökum þarf að fresta opnun skráninga í Háskóla unga fólksins.  
Ástæðan liggur í ófyrirsjáanlegum vandamálum í samskiptum skráningarkerfis og greiðslugáttar. Tæknimenn vinna nú að lausn vandans.      
Við stefnum á að opna fyrir skráningar á morgun, föstudaginn 28. maí, kl. 15.00.  
Beðist er innilegrar afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 

Gangi ykkur vel á morgun!