Í dag þriðjudaginn 16. maí kl. 15:00 verður opnað fyrir skráningar í Háskóla unga fólksins 2023.  Skráningin er rafræn og fer fram hér á vef skólans

Það er viðbúið að það verði mikið álag á skráningarkerfinu og því mikilvægt að vera tilbúin á slaginu þrjú!

Skólinn stendur yfir dagana 12.-16. júní frá kl. 9.00 - 12.30, kostar kr. 25.000 og er fyrir nemendur í 6. - 8. bekk grunnskóla, fædd 2009, 2010 og 2011.

Hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga við skráningu:

1. Verið viðbúin þegar opnað verður fyrir skráningu 16. maí kl. 15.00. Skólinn fyllist mjög fljótt.

2. Vinsamlegast kynnið ykkur námskeið https://ung.hi.is/is/namskeid og stundatöflur https://ung.hi.is/is/skraning sem eru í boði fyrir skráninguna. Hægt er að velja úr 16 stundatöflum, A - R.

3. Um leið og stundatafla fyllist fellur hún út sem valmöguleiki í skráningarkerfinu og þá þarf að velja aðra í staðinn.

4. Vinir geta ekki búist við því að lenda saman því margar stundatöflur fyllast strax. Átján nemendur komast að í hverja stundatöflu.

5. Það borgar sig að vera skipulögð og snögg. Tæknileg tímamörk eru nauðsynleg til að tryggja virkni vefsins og því er ekki hægt að staldra við í hverju skrefi í skráningarferlinu. Verið fljót að fylla út reiti og velja í hverju skrefi.

6. Skráningu er ekki lokið fyrr en þátttakandi hefur greitt og fengið staðfestingu.

7. Vinsamlegast verið með allar upplýsingar til reiðu, s.s. kennitölu, nafn, netfang, heimilisfang og GSM-síma nemanda og greiðanda. Mikilvægt er að hafa greiðslukortið við höndina.

8. Vegna mikillar aðsóknar, sem er alltaf umfram framboð, er því miður ekki hægt að tryggja öllum sæti. Þrátt fyrir að öllum leiðbeiningum hér að framan sé fylgt er því ekki að hægt að tryggja að skráning takist.

9. Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að breyta um stundatöflu eftir á.

Við óskum ykkur góðs gengis við skráninguna og hlökkum til að sjá ykkur!

Image