Opnað verður fyrir skráningar í Háskóla unga fólksins þriðjudaginn 16. maí 2023 kl. 15.00. Skráning fer eingöngu fram rafrænt hér á heimasíðu skólans.

Skólinn stendur yfir dagana 12 - 16. júní frá kl. 9.00 - 12.30 og kostar kr. 25.000. Í ár geta þrír árgangar skráð sig, árgangar 2009, 2010 og 2011 (12-14 ára), þ.e. nemendur í 6. - 8. bekk grunnskóla.

Sem fyrr verða í boði námskeið af öllum sviðum Háskóla Íslands, í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum og þverfræðilegum greinum.

Hægt verður að velja á milli stundataflna og verður allt vel auglýst á heimasíðu skólans sem og þau námskeið sem verða í boði.

Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar!

Image