Í síðustu viku var heldur betur líflegt og skemmtilegt hér á háskólasvæðinu.  Sjáið myndir ljósmyndara frá starfinu í síðustu viku og myndband sem fangaði stemninguna. 

Núna söknum við okkar ungu og fróðleiksfúsu nemenda og erum strax farin að hlakka til næsta sumars.  

Á næsta ári verður Háskóli unga fólksins haldinn dagana 10. - 14. júní 2024. Þá geta árgangar 2010, 2011 og 2012 skráð sig.  Opnað verður fyrir skráningar um miðjan maí 2024, nánari dagsetning auglýst vel þegar nær dregur. 

Takk fyrir samveruna og við hlökkum til næsta árs.

 

 

Image