Í dag var haldinn fjölbreyttur og líflegur þemadagur í Háskóla unga fólksins þar sem nemendur tóku þátt í ólíkum viðfangsefnum og vettvangsferðum eftir því hvaða stundatöflu þau fylgdu. Dagskráin var einstaklega fjölbreytt og vakti bæði forvitni og áhuga. 

Tveir hópar heimsóttu Landspítalann, þar sem þau lærðu um heilbrigðisvísindi, fengu að prófa sig áfram á gervisjúklingum og kynnast störfum heilbrigðisstarfsfólks. Einn hópur fór í CCP og hitti fólk sem vinnur við tölvuleikjagerð, og annar hópur heimsótti RÚV, þar sem nemendur fengu innsýn í fjölbreytt störf fjölmiðlafólks.

Tveir hópar fóru í Íslenska erfðagreiningu og skyggndust inn í heim erfðafræðinnar. Í Þjóðminjasafninu og Eddu fóru nemendur í töfrandi tímaferðalag í leit að drekum, kynjaverum og furðuverum sem leynast í útskornum gripum og fornum handritum.

Í Öskjuhlíð lærði einn hópur að lifa af í náttúrunni í anda Robinsons Crusoe. Einn hópur fór í fjöruferð á Ægissíðu þar sem nemendur fengu fræðslu um kóralla Íslands, þessa litríku byggingarmeistara hafsins. Annar hópur tók þátt í ratleik um háskólasvæðið með áherslu á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Í Veröld voru tveir hópar í tungumálaþema, þar sem áhersla var lögð á fjölbreytt tungumál og menningu. Í húsi var afar áhugasamur hópur í þemanu Hönnun vélmenna – skapandi smiðja, þar sem nemendur bjuggu til fígúrur, tæki og önnur verk úr einföldum efniviði, ljósi, mótorum og skynjurum tengdum við Microbit-tölvur.

Í íþróttaþemanu hjóluðu nemendur með kennara á Klambratún þar sem þau lærðu grunnatriðin í frisbígolfi.

Kennarar og starfsfólk lýstu yfir mikilli ánægju með daginn og hrósuðu nemendum fyrir áhuga, kurteisi og virka þátttöku.

„Það er ótrúlega gaman að sjá hvað þau eru opin fyrir nýjum hugmyndum og taka virkan þátt,“ sagði einn kennaranna.

Þemadagurinn er hluti af heildar dagskrá Háskóla unga fólksins sem miðar að því að kveikja áhuga barna og unglinga á fræðigreinum og háskólanámi og það er greinilegt að áhuginn er mikill!

Allar myndir sem teknar verða í vikunni rata í þetta myndaalbúm. 

Image