Kuml, bein og leyndarmál fortíðar.

Í þessu þema fá nemendur að kynnast göldrum fornleifafræðinnar, meðal annars í skemmtilegri vettvangsferð á Þjóðminjasafn Íslands.

Á námskeiðinu verður fjallað um greftrunarsiði á Íslandi í heiðinni tíð. Nemendur læra um kuml og haugfé og kynnast því hvað fornleifafræðin getur sagt okkur um daglegt líf á víkingaöld.

Á Þjóðminjasafninu fá nemendur að skoða bein og gripi sem algengt er að finna í kumlum. 

fornleifafræði þjóðminjasafnið bein
Share