Frá gögnum að ákvörðunum.
Hvernig gervigreind og gagnavísindi hjálpa okkur að skilja heiminn.
Hvað er gervigreind eiginlega – og hvað eru gagnavísindi? Hvernig geta tölvur lært af gögnum, fundið mynstur og hjálpað fólki að taka ákvarðanir?
Í þessu þema skoðum við hvernig gervigreind og gagnavísindi eru notuð til að greina gögn, spá fyrir um þróun og leysa flókin vandamál. Við skoðum meðal annars spunagreind sem hefur verið mikið í umræðunni undanfarin ár en ræðum líka hvernig gervigreind er í raun mun víðara hugtak sem tengist meðal annars tölfræði, gagnagreiningu, bestun og spálíkönum.
Nemendur kynnast dæmum um hvernig tölvur geta lært af hegðun og gögnum og hvernig slíkar aðferðir eru notaðar til að skipuleggja verkefni, styðja ákvarðanatöku og hjálpa okkur að skilja heiminn betur.
Þemanu lýkur með gönguferð um Grósku þar sem við heimsækjum Vísindagarða og CCP Games og hittum fólk sem vinnur með gervigreind og gagnavísindi í daglegu starfi.
