Getur þú unnið tölvuna?
Spil, ákvarðanir og gervigreind.
Á þessu námskeiði notum við einföld og kunnugleg spil til að skilja hvernig gervigreind virkar í raun. Nemendur prófa að búa til sínar eigin reglur („ef… þá…“) og sjá hvernig mismunandi ákvarðanir leiða til ólíkra niðurstaðna.
Hvernig ákveður tölva hvað hún á að gera næst? Hvað gerir eina lausn betri en aðra? Og er alltaf til ein „rétt“ ákvörðun? Í gegnum spil og verkefni skoðum við hvernig tölvur taka ákvarðanir, prófa mismunandi leiðir og læra hvað virkar best.
Við tengjum þetta við raunveruleg dæmi þar sem gervigreind er notuð til að leysa vandamál, til dæmis í leikjum, skipulagi og ferðaplönum. Nemendur fá að prófa sig áfram, bera saman lausnir og sjá hvernig einfaldar reglur geta orðið að „snjöllum“ kerfum.
Engin forritun er nauðsynleg – bara forvitni, hugsun og smá spilagleði. Námskeiðið hentar öllum sem vilja skilja betur hvernig gervigreind virkar „undir húddinu".
