Háskóli unga fólksins 2025 var settur í morgun með spenntum og glaðbeittum nemendum.

Á þriðja hundrað fróðleiksfúsra og fjörugra nemenda á aldrinum 12–14 ára streymdu í Háskóla Íslands í morgun til að hefja þátttöku sína í Háskóla unga fólksins 2025.

Við skólasetningu á Háskólatorgi fengu nemendur afhent námsgögn og hlýddu á ávarp Kristínar Ásu Einarsdóttur, skólastjóra Háskóla unga fólksins. Að því loknu héldu nemendurnir, í fylgd starfsmanna, í sína fyrstu kennslustund í tveimur byggingum, Odda og Öskju.

Í fyrstu kennslustund dagsins tóku nemendur þátt í fjölbreyttum og spennandi námskeiðum, svo sem Eldfjöllin okkar, Endurlífgun, Fornleifafræði, Afbrotafræði, Eðlisfræði vatnseldflauga, Sjúkraþjálfun, Geituð málvísindi, Lyfjafræði, Japönsk fræði og margt fleira.

Næstu fjórir dagar verða þéttskipaðir af fróðleik og fjöri þar sem nemendur fá tækifæri til að kynnast fjölbreyttum fræðigreinum Háskóla Íslands. Námskeiðin ná yfir öll svið skólans: félagsvísindi, hugvísindi, menntavísindi, heilbrigðisvísindi, verkfræði, raun- og náttúruvísindi og þverfræðileg fög.

Meginmarkmið Háskóla unga fólksins er að vekja áhuga ungs fólks á námi, vísindum og fræðum – og gefa þeim tækifæri til að fræðast um allt milli himins og jarðar.

Ljósmyndari Háskóla Íslands, Kristinn Ingvarsson, var á ferð um háskólasvæðið og fangaði stemninguna á mynd þar sem glaðbeittir og spenntir nemendur nutu fyrsta dagsins.

Á morgun, miðvikudag, mæta nemendur beint í kennslustofur samkvæmt stundaskrá. Við þökkum kærlega fyrir frábæran fyrsta dag og hlökkum til að sjá ykkur hress og tilbúin í ný vísindaævintýri í fyrramálið!

Myndir af starfi skólans vikuna 10 - 13. júní 2025

Image