Háskóli unga fólksins fer inn í sitt 22. starfsár í sumar og byggir því á afar sterkum grunni.  Frá því að skólinn hófst 2004 hafa um sex þúsund nemendur tekið þátt og hundruð spennandi námskeið verið kennd. 

Framundan er enn eitt ævintýrið þar sem forvitni, sköpun og uppgötvun fá að njóta sín. Dagana 10.–12. júní 2026 fá um 250 nemendur á aldrinum 12–14 ára tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum námskeiðum, smiðjum og þemadögum. Þar kynnast þau vísindum og háskólasamfélaginu á lifandi og skemmtilegan hátt í samstarfi við vísindafólk og sérfræðinga Háskóla Íslands.

Ekki missa af þessu því síðustu sætin eru að fyllast! 

Sjáðu myndir frá síðasta ári og fáðu smá innsýn

Aðalbygging og nemendur
Share