Íslenskt táknmál er eitt af fjölmörgum táknmálum heimsins en ólíkt því sem margir halda þá er táknmál ekki alþjóðlegt. Íslenskt táknmál er því einstakt og er fyrsta mál um 300 Íslendinga. Það er hægt að tala um allt á íslensku táknmáli, búa til ný orð, skapa, rífast, blóta, semja ljóð og rappa.

Í þessu námskeiði verða kennd undirstöðuatriði í íslensku táknmáli og rætt um sérkenni menningar táknmálssamfélagsins. Í lok námskeiðs ættu nemendur að geta skipst á einföldum skilaboðum, við hvort annað og allt táknmálstalandi fólk, í gegnum gler, ofan í sundlaug eða á háværum stöðum.

Nemendur í HUF læra táknmál
Share