Háskóli unga fólksins 2026 var formlega settur í dag þegar 230 spenntir, forvitnir og glaðbeittir nemendur á aldrinum 12–14 ára mættu til leiks í Háskóla Íslands.
Mikil stemning ríkti þegar nemendur komu, hittu nýja vini og fengu afhent námsgögn áður en dagskráin hófst af krafti. Skólasetningin fór fram í Sögu kl. 13 þar sem nemendur hlýddu á stutt og hvetjandi ávarp áður en haldið var af stað í spennandi þemadagskrá víðs vegar um háskólasvæðið í fylgd starfsfólks og kennara.
Nemendur fengu að kafa inn í fjölbreytt og áhugaverð viðfangsefni á borð við heilbrigðisvísindi, eðlisfræðiþema í Skuggsjá – tilraunastofu í stjarneðlisfræði, íþróttaþemadag með spennandi ratleik, gervigreind og gagnavísindi með vettvangsferð í CCP Games og Vísindagarða, STEM og spagettí þema með áherslu á skapandi verkefni í eðlisfræði, verkfræði og efnafræði, fornleifafræðiþema með heimsókn í Þjóðminjasafnið og tungumálaþema þar sem nemendur fengu að kynnast grunnatriðum í spænsku, japönsku, frönsku og kóresku.
Auk þess tóku nemendur þátt í Félagsvísindaleiknum þar sem þau settu sig í spor fullorðinna og prófuðu að takast á við áskoranir daglegs lífs, sem og skapandi smiðju þar sem unnið var með hönnun og prentun á textíl.
Næstu tveir dagar verða fullir af fróðleik, sköpun, tilraunum og fjöri þar sem nemendur fá tækifæri til að kynnast heimi Háskólans og vísinda á lifandi og skemmtilegan hátt. Markmið Háskóla unga fólksins er að vekja áhuga ungs fólks á námi og rannsóknum og sýna að fræðin geta verið bæði spennandi, skapandi og skemmtileg.
Það var greinilegt strax á fyrsta degi að ungu þátttakendurnir eru tilbúin að takast á við nýjar áskoranir, spyrja stórra spurninga og prófa sig áfram í heimi þekkingar og vísinda.
Ljósmyndari Háskóla Íslands, Kristinn Ingvarsson, var á ferð um svæðið og náði að festa á mynd kraftinn, gleðina og eftirvæntinguna sem einkenndi fyrsta daginn. Sjá myndir frá starfi skólans dagana 10.–12. júní 2026. Fleiri myndir verða settar í albúmið á næstu dögum.
Við hlökkum til spennandi daga fram undan og óskum öllum nemendum góðs gengis í vísindaævintýrinu Háskóla unga fólksins 2026!
