Þá hafa 250 krakkar á aldrinum 12–14 ára skráð sig til þátttöku í hinum árlega Háskóla unga fólksins, sem stendur dagana 10.–13. júní.
Háskóli unga fólksins fer nú inn í sitt 21. starfsár með glæsilegu úrvali námskeiða. Á tæpri viku fá nemendur tækifæri til að sækja fjölbreytt námskeið, smiðjur og þemadaga hjá vísindafólki og sérfræðingum Háskóla Íslands. Í skólanum má með sanni segja að þekking, forvitni og gleði fari hönd í hönd. Fróðleiksfúsir og fjörugir krakkar kynnast fjölbreyttum fræðum og vísindum út frá spennandi og skemmtilegum sjónarhornum, en áherslan er á lifandi miðlun og virka þátttöku nemenda.
Nemendur gátu valið á milli um 40 námskeiða sem dreifast á 14 ólíkar stundatöflur. Þar er að finna námskeið frá öllum fræðasviðum Háskóla Íslands: félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum, auk þverfræðilegra greina.
Kennsla fer fram kl. 9:00–12:30 og aðallega í tveimur byggingum skólans, Öskju og Odda. Nemendur sækja tvö námskeið á dag, að undanskildum fimmtudeginum 12. júní. Þá verja þau öllum tímanum í ákveðnu þema sem er mismunandi eftir stundatöflum – og þá er gjarnan farið eitthvað á stúfana. Skólanum lýkur svo með grillveislu og lokahátíð í hádeginu föstudaginn 13. júní.
Hægt verður að fylgjast með skólastarfinu bæði hér á vefsíðu skólans og á Facebook-síðu hans
