Í dag var síðasti dagurinn í Háskóla unga fólksins 2022.

Nemendur sóttu tvö námskeið fyrir hádegi og var mikið um að vera. Í námskeiðinu útikennsla og ævintýralegar athafnir fóru nemendur til að mynda með kennurum vítt og breitt um Vatnsmýrina og lærðu einfaldar aðferðir til að lifa af úti í náttúrunni og greindu einnig lífríki nærumhverfisins, svo sem vatnalífvera, plantna og fugla. Nemendur í latínu fengu innsýn í forna menningu Rómverja og nemendur í hönnun vélmenna, skapandi smiðju bjuggu til litlar fígúrur og forrituðu þær til að glæða lífi. Í efnafræði voru gerðar áhugaverðar tilraunir og skemmtileg verkefni leyst. Þá fengu öll afhent viðurkenningarskírteini og tóku þátt í skoðanakönnun.

Eftir allan fróðleikinn streymdu nemendur að Háskólatorgi þar sem starfsmenn grilluðu pylsur fyrir unga fólkið. Eftir grillveisluna tóku nemendur þátt í útileikjum, ofurþrautabraut og á fussball-fótboltaborði áður en þeir héldu til síns heima með ýmsar nýjar hugmyndir og þekkingu í farteskinu.

Við þökkum kærlega fyrir samveruna síðustu daga og getum varla beðið eftir næsta sumri og enn fleiri nemendum í Háskóla unga fólksins.

Myndir Kristins ljósmyndara frá því í dag og síðustu daga má finna hér.