Ritlist - Ritsmiðja þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum.
Áherslan á námskeiðinu verður fyrst og fremst á ritun texta af ýmsu tagi. Skoðað verður hvaðan kveikjur og hugmyndir koma og hvernig þeim er fylgt eftir í skrifum.
Nemendur kynna einnig texta sína hver fyrir öðrum og skoða leiðir til að fara með þá lengra og dýpra.