Háskóli unga fólksins 2026

Í ár bjóðum við velkomin börn og unglinga fædd 2012, 2013 og 2014.
Þetta eru nemendur sem eru að ljúka 6.–8. bekk í grunnskóla og fá nú tækifæri til að taka þátt í því einstaka vísindaævintýri sem Háskóli unga fólksins er.  

Skráning opnar þriðjudaginn 19. maí kl. 15:00 og fer eingöngu fram hér á heimasíðu skólans. Við hvetjum þátttakendur til að vera tilbúin á slaginu því það fyllist jafnan hratt.
Verð kr. 19.000. 

Kennslan fer fram dagana 10.–12. júní
Dagskrá: 
🟢Dagur 1  – 10. júní
Skólasetning kl. 13:00
Þemanámskeið kl. 13:30–16:00

🟢Dagur 2 – 11. júní
Fyrra námskeið kl. 9:00–10:30
Frímínútur og leikir kl. 10:30 - 11:00
Seinna námskeið kl. 11:00–12:30

🟢Dagur 3 – 12. júní
Fyrra námskeið kl. 9:00–10:30
Frímínútur og leikir kl. 10:30 - 11:00
Seinna námskeið kl. 11:00–12:30
Lokahátíð og grillveisla kl. 12:30–13:30.

Í boði verða fjölbreytt námskeið frá öllum sviðum Háskóla Íslands, allt frá frá verkfræði, raunvísindum, náttúru- og félagsvísindum til hugvísinda, menntavísinda og heilbrigðisvísinda. Öll ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Stundatöflur eru settar saman þannig að nemendur fái að upplifa og kynnist fjölbreyttum og spennandi vísindum. 

Hægt verður að velja á milli 14 stundataflna. Öll námskeið og stundatöflur verða kynnt á heimasíðunni í byrjun maí.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í sumar!

Mynd_HUF_2025
Share