Á þessu námskeiði fá þátttakendur að hanna og útfæra eigin mynd og vinna hana alla leið í afurð á textíl. Unnið er í anda sköpunarsmiðja (FabLab / makerspace) þar sem hugmyndir eru þróaðar, prófaðar og færðar yfir í áþreifanlega hluti með aðstoð stafrænnar tækni.
Þátttakendur fara í gegnum einfalt og skapandi ferli frá hugmynd að fullunninni vöru. Þeir teikna og þróa eigin hönnun, færa hana yfir í stafrænt form og vinna hana í vinýlskera. Að lokum er hönnunin pressuð á textíl, til dæmis bol, peysu eða taupoka.
Áhersla er lögð á hönnun og skapandi ferli með afurðina í huga, hvernig myndin nýtur sín á efni, stærð, form og stíl. Þátttakendur fá þannig innsýn í hvernig hönnun og tækni vinna saman og hvernig hægt er að búa til eitthvað persónulegt, skapandi og nytsamlegt. Námskeiðið hefur jafnframt sjálfbæra nálgun þar sem þátttakendur eru hvattir til að nýta eldri flíkur eða textíl og gefa þeim nýtt líf með eigin hönnun.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á sköpun, hönnun og tækni, óháð fyrri reynslu.
Hvetjum þátttakendur til að taka með sér eitthvað til að setja hönnunina á, til dæmis bol, peysu, taupoka eða annan textíl.
