Í sannkölluðu blíðskaparveðri lauk Háskóli unga fólksins 2025 með pomp og prakt þegar haldin var stórglæsileg lokahátíð. Það var mikil sumarstemning með grillveislu, hlátri og skemmtidagskrá sem glæddi háskólasvæðið lífi og fjöri.
Okkar ungu 12–14 ára nemendur nutu sín í fjölbreyttum útileikjum og uppblásnum leiktækjum eins og teygjubraut, fótboltavöll og fussball sem vakti mikla lukku.
Fyrr um daginn höfðu nemendurnir setið margskonar spennandi námskeið. Þau fengu að skyggnast inn í heim skurðlækninga, kafa í fjármálalæsi og grunnatriði fjármála, skoða samfélagið í gegnum gleraugu félagsráðgjafar og vinna með seiglu og vellíðan, kanna náttúruna í Vatnsmýri og taka þátt í samstöðuleikjum í tómstunda- og félagsmálafræði.
Þau léku sér með orð í sagnasmiðju, lærðu undirstöður tölvutækni og forritunar og fengu innsýn í erfðafræði, DNA og hvernig erfðir virka og hvað erfðaefnið segir okkur.
Einnig var rýnt í alþjóðastjórnmál dagsins í dag og lýðræði í stjórnmálafræði, í þjóðfræði var fjallað um álfa, huldufólk og íslenskan menningararf og farið í grunnþættina í leiklist í lífsleikni og stuttar senur sem nemendur mótuðu sjálfir.
Að lokinni kennslu fengu allir nemendur afhent viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna sem þau hafa svo sannarlega unnið fyrir með áhuga, forvitni og gleði í vikunni.
Við þökkum öllum þeim kraftmiklu og hugmyndaríku ungmennum sem tóku þátt fyrir ógleymanlega viku. Við vonum að þau fari heim með fullan bakpoka af nýrri þekkingu, skemmtilegum minningum og innblæstri til framtíðar.
Kennarar Háskóla unga fólksins, sem mörg hver eru vísindamiðlarar af guðs náð, fá einnig sérstakar þakkir fyrir sitt ómetanlega framlag.
Allar myndir sem teknar voru í vikunni má finna í þessu myndaalbúmi.
