Í þessu þema fá nemendur tækifæri til að öðlast innsýn í undraheim svokallaðra STEM-greina. Sérstök áhersla verður lögð á eðlisfræði, verkfræði og efnafræði.
Eðlisfræði ljóss og hljóðs. Hver er munurinn á hljóði og ljósi og af hverju getum við heyrt manneskju sem við sjáum ekki? Við framkvæmum einfaldar tilraunir í hljóð- og ljósfræði og skoðum hliðstæður þeirra.
Undur efnafræðinnar. Kynning á undrum efnafræðinnar með léttum og skemmtilegum tilraunum og sýnikennslu. Nemendur búa til fílatannkrem, kveikja eld á nýstárlegan hátt og, ef tími vinnst til, svarar kennarinn fjölmörgum spurningum tengdum efnafræði.
Hversu háan turn er hægt að byggja úr spagettí?Nemendur hanna og smíða sinn eigin turn úr spagettí og fræðast um hvað gerir byggingu sterka, stöðuga og endingargóða. Verkefnið reynir á hugmyndaflug, samvinnu og lausnamiðaða hugsun.
