Í þessu þema fá nemendur tækifæri til að öðlast innsýn í undraheim svokallaðra STEM-greina. Sérstök áhersla verður lögð á eðlisfræði, verkfræði og efnafræði.
Eðlisfræði ljóss og hljóðs. Hver er munurinn á hljóði og ljósi og af hverju getum við heyrt manneskju sem við sjáum ekki? Við framkvæmum einfaldar tilraunir í hljóð- og ljósfræði og skoðum hliðstæður þeirra.
Undur efnafræðinnar. Kynning á undrum efnafræðinnar með léttum og skemmtilegum tilraunum og sýnikennslu. Nemendur búa til fílatannkrem, kveikja eld á nýstárlegan hátt og, ef tími vinnst til, svarar kennarinn fjölmörgum spurningum tengdum efnafræði.
