Veðurguðirnir léku sannarlega við nemendur og starfsfólk á öðrum degi Háskóla unga fólksins!

Það var líf og fjör strax í morgunsárið þegar ungu og fróðleiksfúsu nemendurnir okkar mættu spenntir til leiks.  Við tóku fjölbreytt og spennandi námskeið þar sem meðal annars var kafað ofan í kínversk fræði, lögfræði, stjörnufræði, lyfjafræði, fornleifafræði og félagsráðgjöf, auk þess sem nemendur fengu fræðslu í tölvutækni, forritun og íþrótta- og heilsufræði.

Áhuginn leyndi sér ekki og margir kennarar nýttu blíðviðrið til að færa kennsluna út undir bert loft, sem gaf deginum enn skemmtilegri blæ.

Í frímínútum nýttu nemendur og starfsfólk góða veðrið útivið í skotbolta, pókó, eitur í flösku og fleiri hressilegum leikjum.

Á morgun, föstudag, heldur vísindaævintýrið áfram með enn meiri fróðleik. Að því loknu verður slegið upp glæsilegri lokahátíð, en henni fylgir grillveisla í hádeginu, uppblásin leiktæki, skemmtun og sannkallað sumarstuð!

Sjá myndir frá starfi skólans dagana 10.–12. júní 2026. Fleiri myndir verða settar í albúmið á næstu dögum.

 

Lyfjafræði Efnafræði
Share