Þjóðfræði - álfar og huldufólk

Hvað eru álfar og hvað er huldufólk? Hver er munurinn? Hvað vitum við um þau? Hvernig birtast álfar og huldufólk í bíómyndum, þjóðsögum, bókmenntum og tölvuleikjum?
Í þessu námskeiði munum við skoða álfa og huldufólk út frá ýmsum sjónarhornum. Við munum velta fyrir okkur hvað það er sem einkennir þau, ræða um helstu birtingarmyndir þeirra og velta því fyrir okkur hvernig við þekkjum þau í nútímanum.
Þá munu nemendur búa til sína eigin álfa og huldufólk og sögu um þau. Nemendur hafa val um hvernig þau framkvæma verkefnið, taka upp stutta kvikmynd, skrifa sögu eða teiknimyndasögu, búa til plakat, eða setja hugmyndir niður á blað og kynna.  

 

Titill
Hvernig námskeið

Texti
  • Námskeið í 90 mín
Mynd
Image