Langar þig að prófa að tálga í tré, kveikja varðeld og baka brauð úti? Í þessu námskeiði lærum við öruggar tálgunaraðferðir og tálgum lítinn skógarálf. Við spjöllum um hvernig fólk hefur notað tré í gegnum tíðina og veltum fyrir okkur tengslum okkar við náttúruna.

Við hellum upp á birkite, bökum skógarbrauð yfir eldstæði og eigum skemmtilega og notalega stund saman. Námskeiðið er fyrir þau sem vilja gera eitthvað nýtt, nota hendurnar, vera skapandi og læra meira um tré, skóga og náttúruna í kringum sig.

Mynd_HUF_2025
Share