Háskóli unga fólksins 2025 var haldinn 10.-13. júní.
Nemendur gátu valið á milli 14 fjölbreyttra stundataflna með sex námskeiðum og einum þemadegi hver. Í boði voru námskeið af öllum sviðum Háskóla Íslands, í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum og þverfræðilegum greinum.
Kennsla fór fram kl. 9:00 - 12:30. Nemendur sóttu tvö námskeið hvern dag að undanskildum fimmtudeginum 12. júní, en þá vörðu þau öllum tímanum í tiltekinni grein í svokölluðu þema sem var mismunandi eftir stundatöflum. Háskóla unga fólksins lauk svo með lokahátíð í hádeginu 13. júní.
Námskeið í 90 mín
Hvað skýrir afbrot og hvernig eigum við að bregðast við þeim? Hver er tilgangur refsinga – og skilar það árangri að lengja eða stytta fangelsisdóma?Á þessu námskeiði skoðum við helstu skýringar á afbrotahegðun og ræðum hlutverk refsinga, lögreglu og fangelsa í samfélaginu.
Kennarar
- Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Hvað eru fjölmiðlar og hvaða máli skipta þeir í samfélaginu? Hvað telst frétt og hvað eru falsfréttir? Hver er munurinn á því að vinna fréttir fyrir dagblöð, netmiðla og sjónvarp? Hvað gera fréttamenn og hvaða hlutverki gegna kvikmyndatökumenn og ljósmyndarar í fréttum? Þú færð svör við þessu og ýmsu fleiru í námskeiðinu en þú munt líka fá að spreyta þig á tækjum og tólum sem fréttamenn nota í sinni vinnu.
Kennarar
- Björn Gíslason, kynningar- og vefritstjóri á markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands
- Rafn Rafnsson, verkefnisstjóri við deild stafrænnar kennslu og miðlunar við Háskóla Íslands
Þema í 180 mín.
Á þessu ævintýralega námskeiði í Þjóðminjasafninu og Eddu – Húsi íslenskunnar – förum við í töfrandi tímaferðalag í leit að drekum, kynjaverum og furðuverum sem leynast í útskornum gripum og fornum handritum.Við skoðum tvær spennandi og gagnvirkar sýningar: Þjóð verður til og Heimur í orðum, og fáum innblástur til eigin sköpunar.
🎨 Skissum okkar eigin kynjaverur, innblásnar af íslenskum þjóðsögum📜 Prófum að skrifa með fjaðurstaf og náttúrubleki á alvöru kálfskinn – alveg eins og á miðöldum!
Skapandi, sögulegt og spennandi námskeið þar sem listræn tjáning og ímyndunarafl fá að blómstra.
Verk nemenda sem vilja verða til sýnis í barna- og fjölskyldurými Þjóðminjasafnsins í kjölfarið ásamt ljósmyndum og texta um ferlið að baki gerð verkanna.
Kennari
- Marta Guðrún Jóhannesdóttir, safnkennari Árnastofnunar og Bergdís Klara Marshall, starfsmaður Þjóðminjasafns Íslands.
Námskeið í 90 mín
Efnafræði fjallar um byggingu og eiginleika hinna ýmsu efna og hvernig efni hvarfast hvert við annað. Fræðigreinin er mjög stór og fjölbreytt því efni eru allt í kringum okkur. Allur matur, lyf, hreinsiefni, tölvur, sprengjur og jafnvel við sjálf erum gerð úr mismunandi efnum.
Í efnafræðinámskeiði Háskóla unga fólksins gera nemendur nokkrar áhugaverðar tilraunir og leysa skemmtileg verkefni.
Til skoðunar verða efni sem allir ættu að þekkja úr umhverfinu, svo sem C-vítamín, vatn, edik og kerti. Notuð verður aðferð sem kallast títrun við að magngreina C-vítamín og vatn verður rafgreint og þannig brotið upp í frumefni sín, þ.e. súrefni og vetni.
Kennarar
- Katrín Lilja Sigurðardóttir, aðjúnkt við Raunvísindadeild Háskóla Íslands og forsprakki hins landsfræga Sprengjugengis
- Gunnhildur Diljá Gunnarsdóttir, nemandi í efnafræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Eðlisfræðin fjallar um eðli, gerð og hegðun efnisheimsins – allt frá öreindum til stærstu vetrarbrauta alheimsins. Hún snýst um að lýsa náttúrufyrirbærum með stærðfræðilegum líkönum og að spá fyrir um hvað muni gerast, áður en tilraunir eru framkvæmdar.
Í þessu námskeiði vinna nemendur með einfaldan og ódýran búnað sem flestir þekkja úr daglegu lífi – eins og álpappír, gosflöskur, vatn og blöðrur – til að hanna og skjóta eigin vatnseldflaugum. Verkefnið sameinar hagnýta sköpun með vísindalegri hugsun: Hvernig hefur hlutfall vatns og lofts áhrif á flughæð eldflaugarinnar? Hvaða aðferðir má nota til að mæla flughæð flöskunnar?
Nemendur framkvæma tilraunir, safna mæligögnum og læra að túlka þau með gagnagreiningu. Námskeiðið veitir innsýn í vinnubrögð vísinda og hvetur til skapandi hugsunar.
Kennari
- Matthias Baldursson Harksen, doktorsnemi í eðlisfræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Á Íslandi er mörg virk eldfjöll og eldgos eru algeng. Þau eru af ýmsu tagi. Sum gosin mynda hraun, í öðrum verða sprengigos. Þá myndast gosmekkir sem flytja ösku, jafnvel milli landa. Sum eldgosin verða í jöklum og valda þá stórum jökulhlaupum.
Í Háskóla unga fólksins könnum við ýmsar gerðir eldgosa og nemendur fá tækifæri til að skoða gjósku af ýmsu tagi og hraunmola úr nýlegum eldgosum. Þau fá að leysa skemmtileg verkefni, m.a. að prófa ýmis tæki, eins og jarðskjálftamæli, með því að búa til eigin jarðskjálfta, auk þess að sjá hvernig hitamyndavélar virka.
Kennari
- Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Langar þig að geta bjargað mannslífi? Bjargráður er félag læknanema um endurlífgun en markmið félagsins er að kenna krökkum og fullorðnum grunnatriðin í endurlífgun. Hvað eigum við að gera ef við komum að manneskju sem liggur á jörðinni? Hvað ef hún svarar ekki ef við köllum á hana? Hvað ef hún andar ekki?Við förum yfir öll þessi atriði og gerum það á skemmtilegan hátt svo engum ætti að leiðast á meðan lært er um þessi mikilvægu atriði sem geta hjálpað ykkur að bjarga mannslífi.
Kennarar
- Félagar í Bjargráði, félagi læknanema við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Á þessu námskeiði fá þátttakendur að skyggnast inn í heillandi heim erfðafræðinnar og læra hvað DNA er, hvernig erfðir virka og hvers vegna við erum lík fjölskyldu okkar, en líka hvað gerir okkur einstök. Námskeiðið samanstendur af heillandi fræðslu með opnum umræðum og vangaveltum ásamt því að framkvæma verklega tilraun. Verklega æfingin felur í sér að þátttakendur fá að einangra DNA úr eigin frumum og sjá það með berum augum – og taka jafnvel DNA-sýnið með sér heim!
Skemmtilegt, fræðandi og vísindalegt ævintýri fyrir þau sem vilja kafa dýpra í lífvísindin!
Kennari
- Guðrún M. Sigurbergsdóttir, líffræðingur hjá Íslenskri Erfðagreiningu og verkefnisstjóri hjá NýMennt Háskóla Íslands
Námskeið í 180 mín
Skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra einfaldar aðferðir við að auka seiglu og farið verður yfir hvað getur haft áhrif á okkar vellíðan. Á þessu námskeiði lærir þú aðferðir til að styrkja þig og auka vellíðan þína. Rætt verður um hvað getur haft áhrif á hvernig þér líður og hvað hægt er að gera til þess að líða betur.
Þú munt skoða myndir og æfa þig í að sjá hluti frá fleiri en einu sjónarhorni. Auk þess að þjálfa þig í því að segja frá því sem þú sérð og hvernig þú getur brugðist við ef aðrir eru ekki sammála þér.
Á námskeiðinu færð þú tækifæri til að leysa skemmtilegt verkefni sem efla þig í því að vinna með öðrum.
Í lokin færð þú að prófa hugleiðslu og teiknar sérstaka tilfinninga- og seiglukassa sem þú getur tekið með þér heim.
Þetta námskeið er fyrir krakka sem vilja styrkja sjálfa sig, læra að tjá tilfinningar, sjá hvað aðrir sjá og æfa sig í að tengjast eigin tilfinningum.
Kennslan fer fram innandyra.
Kennari
- Oddný Jónsdóttir, aðjúnkt við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Á þessu námskeiði kynnist þú því hvernig peningar virka og hvernig hægt er að nýta þá á skynsaman hátt. Við skoðum hvað peningar eru, hvaðan þeir koma og hvers vegna þeir skipta máli – bæði í dag og í framtíðinni.
Þú lærir um sparnað, vexti, fjárfestingar og hvernig tíminn getur haft áhrif á verðmæti peninga. Við ræðum líka hvað lán eru, hvernig vextir virka og af hverju það er mikilvægt að hugsa áður en maður eyðir.
Í námskeiðinu leysir þú skemmtileg verkefni, tekur þátt í leik þar sem þú tekur fjárhagslegar ákvarðanir, og býrð til þína eigin sparnaðar- eða fjárfestingaáætlun.
Þetta námskeið er fyrir forvitna krakka sem vilja læra að stjórna eigin peningum og taka góðar ákvarðanir um fjármál.
Kennari
- Danival Örn Egilsson og Styrmir Vilhjálmsson BS nemar í viðskiptafræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Hvað er fornleifafræði og hvað gera fornleifafræðingar? Það eru fjölbreytt svör við þessari spurningu enda eru verkefni fornleifafræðinga margskonar og fornleifar af ýmsum stærðum og gerðum.
Á námskeiðinu fá nemendur að skyggnast inn í heim fornleifafræðarinnar og verður farið yfir hvernig rannsóknir eru stundaðar á Íslandi, hvernig fornleifar finnast og aldursgreiningu fornleifa. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna þetta skiptir allt máli og hvaða upplýsingar fornleifar geta gefið okkur.
Í verkefnum fá nemendur m.a. að kynnast þeim gripum sem finnast á Íslandi og handleika nokkra vel valda gripi sjálf.
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á sögunni, vilja læra með höndunum og kynnast því hvernig fornleifafræði er stunduð í raun og veru.
Kennari
- Brynja Árnadóttir, BA í fornleifafræði og MT nemi í sögukennslu við Háskóla Íslands.
Námskeið í 90 mín
Hvernig breytum við hugmynd í lausn? Á þessu námskeiði förum við í gegnum skemmtilega og skapandi vinnustofur þar sem við tökumst á við raunverulegt vandamál og mótum okkar eigin hugmynd að lausn. Látum hugmyndirnar flæða, búum til frumgerðir og lærum að miðla lausnum á áhugaverðan og aðgengilegan hátt. Þetta er námskeið fyrir öll sem vilja spreyta sig á nýsköpun, vinna saman, prófa, hugsa upphátt og skapa eitthvað nýtt – alveg frá grunni!
Kennari
- Guðrún M. Sigurbergsdóttir, líffræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu og verkefnastjóri hjá NýMennt Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Af hverju notum við orð eins og geitað, heyrðu, þúst og án djóks? Hvernig rannsökum við tungumálið með vísindalegum aðferðum?
Í þessu námskeiði ætlum við að kynnast tungumálinu eins og við tölum það í raun og veru (án djóks!). Rannsóknir á unglingamáli og hversdagslegum samtölum eru nefnilega mjög mikilvægar til að skilja eðli tungumálsins og hvað það er sem gerir mannleg samskipti svona einstök (og gervigreind ræður ekki við). Í Háskóla unga fólksins læra nemendur um rannsóknaraðferðir málvísinda, fá að grúska í upptökum og greina hlutverk og merkingu orða í talmáli.
Við hvetjum nemendur til að skrifa hjá sér dæmi um geitað, heyrðu, þúst eða án djóks í eigin lífi fyrir tímann en það er alls ekki nauðsynlegt!
Kennarar
- Rósa Signý Gísladóttir, dósent í almennum málvísindum
- Ása Jónsdóttir, MA-nemi í almennum málvísindum
Námskeið í 90 mín
Hvað er gervigreind og hvað er þetta ChatGPT sem er alltaf verið að tala um? Hvernig getum við nýtt okkur gervigreind til að létta okkur lífið og hvað þurfum við að varast? Gervigreind verður sífellt meira áberandi í samfélagsumræðunni enda getur hún gert ótrúlegustu hluti, allt frá því að skilja mannlegt mál yfir í að taka ákvarðanir sem stjórna flóknum ferlum innan fyrirtækja. Á námskeiðinu verður farið yfir það hvernig gervigreindin hefur þróast undanfarin ár og þau stórkostlegu tækifæri sem fylgja þeirri þróun. En gervigreindin er ekki gallalaus og það er grundvallaratriði að skilja hvaða hættur geta leynst í notkun hennar. Hvers vegna eru til dæmis snjallaðstoðarmenn eins og Siri, Alexa og Embla yfirleitt alltaf konur? Hvers vegna hætti Amazon við að nota gervigreind til þess að fara sjálfvirkt yfir starfsumsóknir hjá sér? Hvers vegna koma ítrekað fram dæmi þar sem gervigreindin sýnir fordóma og útskúfun tiltekinna hópa? Er hægt að koma í veg fyrir það? Hvernig getum við notað gervigreind á þannig hátt að það tryggi jafnrétti og öryggi allra sem að henni koma? Auk þess að fara yfir helstu vefþjónustur er varða gervigreind fá nemendur í hendurnar einfaldan kóða sem opnar dyrnar að nokkrum íslenskum og erlendum gervigreindarlíkönum. Nemendurnir aðlaga kóðann að sínum óskum með hjálp kennara. Engin fyrri reynsla af tækni eða forritun nauðsynleg. Námskeiðið hentar öllum, bæði tæknitröllum og forvitnum nýgræðingum. Öllum gefst tækifæri til þess að kanna undraheima gervigreindar með einstaklingsmiðaðri aðstoð.
Kennari
- Steinþór Steingrímsson, rannsóknarlektor við Árnastofnun
Þema í 180 mín
Finnst þér mannslíkaminn áhugaverður? Langar þig að fræðast um heilbrigði og heilsu og kynnast spennandi viðfangsefnum heilbrigðisstarfsfólks?
Þemadagurinn fer fram Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Nemendur fá innsýn í fjölbreytt störf heilbrigðisstarfsfólks og fá tækifæri til þess að skoða hinar ýmsu hliðar heilbrigðisvísinda.
Landspítali Háskólasjúkrahús er leiðandi sjúkrahús á Íslandi og stærsti vinnustaður starfsmanna í heilbrigðiskerfinu.
Kennarar
- Starfsfólk á Landspítala Háskólasjúkrahúsi
Námskeið í 90 mín
Hvað eru heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og af hverju skipta þau máli? Hvernig tengjast þau friði, mannréttindum og jafnrétti? Hver ber ábyrgð á að þau náist – og hvaða áhrif get ég haft?
Í þessu örnámi kynnast þátttakendur heimsmarkmiðunum á skapandi og gagnvirkan hátt. Þeir taka þátt í spurningakeppni, ræða um mikilvægar spurningar og skoða eigin sýn með því að taka myndir sem tengjast markmiðunum. Hvernig lítur „friðsælt samfélag“ út á mynd? Hvað segir mynd af rusli við göngustíg um sjálfbæra þróun?
Þátttakendur læra að hlusta með opnum huga, setja sig í spor annarra og tengja persónulega reynslu við stærri hugmyndir um réttlæti og sjálfbærni. Aldrei að vita nema einhver vinni verðlaun!
Kennarar
- Pétur Hjörvar Þorkelsson, mannfræðingur og uppeldis- og menntunarfræðingur og verkefnastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
- Vala Karen Viðarsdóttir, mannfræðingur og meistaranemi í alþjóðasamskiptum og framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Þema í 180 mín
Hvernig afla fréttamenn frétta og hvaða tæki nota þau? Á þessum þemadegi kynnast nemendur störfum fjölmiðlafólks og spreyta sig á tækjum og tólum sem fréttamenn nota í sinni vinnu. Þá verður farið í heimsókn á RÚV þar sem nemendur fá innsýn í þau fjölbreyttu störf sem fjölmiðlafólk fæst við þar.
Kennarar
- Björn Gíslason, kynningar- og vefritstjóri á markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands
- Rafn Rafnsson, verkefnisstjóri við deild stafrænnar kennslu og miðlunar við Háskóla Íslands
Þema í 180 mín
Skapandi smiðja þar sem þátttakendur vinna í litlum hópum að því að búa til litla fígúru, tæki eða annað álíka úr einföldum efniviði auk ljósa, mótora eða skynjara sem tengd eru við Microbit tölvur. Tölvurnar eru svo forritaðar til að stýra rafbúnaðinum til að glæða smíðina lífi.Engin þörf er á forþekkingu á föndri eða forritun en sköpunargleði er kostur.
Notaður verður myndrænn ritill sem auðvelt er að læra á, en reynslumeiri þátttakendur geta einnig notað JavaScript eða Python ef þau kjósa það heldur.
Kennarar
- Martin Swift, eðlisfræðingur og verkefnastjóri eflingar raunvísinda og tæknigreinamenntunar við Háskóla Íslands
- Sveinn Bjarki Tómasson M.ed., leiðangursstjóri í vélmennaævintýrum og verkefnastjóri nýsköpunar- og tæknimenntunar hjá NýMennt við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Viltu fá innsýn inn í líf og störf íþróttafræðings og kynnast hvernig hreyfing og svefn geta haft áhrif á heilsuna? Langar þig til að forvitnast um hvernig líkaminn bregst við æfingum og þjálfun?Í íþrótta- og heilsufræðinámskeiðinu munum við fræðast um og framkvæma ýmsar áhugaverðar mælingar og reyna á alla vöðva líkamans. Verið því tilbúin í skemmtilegan og fróðlegan tíma þar sem við munum hreyfa okkur bæði úti og inni og því er mikilvægt að vera í viðeigandi fatnaði. Mikilvægt er að klæða sig í viðeigandi íþróttafatnað og skóbúnað, fyrir inni og útiveru.
Kennari
- Sigurður Skúli Benediktsson, aðjúnkt við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Þema í 180 mín
Í þema verður farið í hjólaferð á Klambratún þar sem hópurinn fær kennslu í frisbígolfi. Farið verður yfir það helsta sem þarf til þess að stunda frisbígolf sem íþrótt og afþreyingu. Hvernig kastar maður frisbígolf diskum og hvernig eru leikreglurnar? Ef þú hefur áhuga á íþróttaiðkun, góðri heilsu, útiveru og lífsstíl er þetta kjörið þema fyrir þig. Nauðsynlegt er að mæta með hjól og hjálm. Klæða sig eftir veðri og vera í viðeigandi skóbúnaði.
Kennari
- Sigurður Skúli Benediktsson, aðjúnkt við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Japanskt mál og menning.
Japönsk menning er um margt sérstök og ímynd landsins til jafns tengd hátækni og hraða nútíma samfélags sem og forn menningu og hefðum.
Á námskeiðinu verður aðeins rýnt í sérkenni japanskrar menningar en sérstaklega verða tekin fyrir grunn atriði í japanskri tungu og munu nemendur læra ýmsar almennar kveðjur og grunn orðaforða.
Sjónum verður einnig beint að hinu sérstæða ritmáli japönskunnar, hiragana og katagana, sem eru atkvæðisleturgerðir, og svo kanji, sem byggist á myndtáknum. Nemendum gefst einnig tækifæri til að skrifa nokkur tákn á hefðbundna vísu.
Kennari
Yayoi Mizoguchi, stundakennari í japönskum fræðum og MA nemandi í alþjóðlegu námi í menntunarfræði við Háskóla Íslands
Þema í 180 mín
Kórallar Íslands - Skapandi smiðja um framtíð hafsins.
Vissirðu að í kring um Ísland búa yfir 70 tegundir af kóröllum og að í þeim búa fiskarnir?
Á þemadeginum fáum við að kynnast þessum litríku byggingarmeisturum hafsins betur, fræðumst um mikilvægi þeirra og ógnirnar sem að þeim steðja. En fyrst og fremst munum við einbeita okkur að lausnum! Með notkun skapandi aðferða arkitektúrs munu nemendur í sameiningu teikna tillögur að verndarsvæðum í hafi.
Þá er aldrei að vita nema við skellum okkur í fjöruferð og stofnum kórallanafnanefnd Íslands, þá vantar nefnilega íslensk heiti.
Kennarar
- Sigrún Perla Gísladóttir, MArch sjálfbærniarkitekt og haffræðingur
- Sæunn Júllía Sigurjónsdóttir, MSc í verndunarlíffræði
- Esther Jónsdóttir, MSc í umhverfisstjórnmálafræði
Námskeið í 90 mín
Skemmtilegt námskeið þar sem unnið er með grunnþætti í leiklist og stuttar senur sem nemendur móta sjálfir. Leikir, gleði og gaman.
Kennari
- Halldóra Rósa Björnsdóttir, aðjúnkt við deild faggreinakennslu Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Lyfjafræðin er fjölbreytt fag innan heilbrigðisvísindanna. Þar fara fram ýmsar rannsóknir, allt frá því hvaða efni hafa lyfjafræðilega virkni gagnvart ákveðnum sjúkdómi, hvernig þau eru sett saman (formúleruð) í endanlegt lyfjaform og síðan hvernig þau reynast sjúklingnum.
Þar sem lyfjafræðin tekur sífelldum breytingum verður fjallað um það hvert lyfjafræðin stefnir, frá apóteksframleiðslu yfir í lyfjafyrirtækin. Nemendur munu fá að kynnast ýmsum þáttum lyfjafræðinnar og hvað það þýðir að vera lyfjafræðingur. Nemendur fá einnig að kynnast vinnubrögðum í framleiðslu á lyfjaformum.
Kennari
- Bergþóra Sigríður Snorradóttir, sérfræðingur við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Kennsla og vettvangsferð í einn af leyndardómum Háskóla Íslands.
Hvað eru lög? Hvernig verða þau til og af hverju förum við eftir þeim? Hvaða hlutverki gegna Alþingi, handhafar framkvæmdarvalds og dómsvalds? Hvað gera lögfræðingar og hvernig lítur starfsumhverfi þeirra út?Fjallað verður um grunnstoðir lögfræðinnar og hugmyndir okkar um lögin. Við veltum fyrir okkur af hverju við förum eftir lögunum og hvernig lögin snerta okkar daglega líf og athafnir. Við mátum dómaraskikkjur og ræðum raunveruleg álitaefni.
Nemendur eru hvattir til að taka virkan þátt í námskeiðinu og fá að spreyta sig á lögfræðilegum álitaefnum og máta sig í ýmis hlutverk lögfræðinga.
Kennari
- Þorsteinn Davíð Stefánsson, mag.jur í lögfræði við lagadeild Háskóla Íslands.
Námskeið í 90 mín
Menning og mannlíf Mið-Austurlanda er í senn margbrotið og heillandi.
Í þessu námskeiði kíkjum við á minjar um forn menningarsamfélög, allt frá Súmerum og Egyptum fyrir þúsundum ára, og rennum yfir sögu, trúarbrögð og tungumál landanna, allt til dagsins í dag. Við skoðum sérstaklega íslam, uppruna þess og samfélög múslima.
Nemendur fá auk þessa skyndinámskeið í arabísku og geta spreytt sig á að skrifa nokkur orð með arabískum stöfum.
Kennari
- Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands
Þema í 180 mín
Í námskeiðinu er maturinn okkar skoðaður með hjálp vísindanna. Nemendur framkvæma spennandi þrautir og tilraunir. Búið ykkur undir tíma sem reynir á bragðskynið, lyktarskynið, heilastarfsemina og fleira.
Kennari
- Birna Þórisdóttir, lektor í næringarfræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Finnst þér gaman að segja frá? Langar þig til þess að verða færari í að skrifa sögur og texta á íslensku? Á þessu námskeiði veltum við fyrir okkur merkingu orða og hvaðan þau koma, köstum á milli hugmyndum að atburðarrás, söguþræði og samhengi og skrifum síðan stuttar sögur. Leikgleðin verður við völd!
Kennarar
- Þórunn Rakel Gylfadóttir, rithöfundur og meistaranemi í ritlist við Háskóla Íslands
- Berglind Erna Tryggvadóttir, MA í ritlist frá Háskóla Íslands, rithöfundur, þýðandi og myndlistarkona
Námskeið í 90 mín
Hefur þú áhuga á hreyfingu og líkamanum? Í námskeiðinu færðu innsýn í hvernig líkaminn virkar í tengslum við stoðkerfi og hreyfingu. Námskeiðið gefur innsýn inn í heim sjúkraþjálfunar og gefur þátttakendum tækifæri á að prófa alls kyns tæki og tól tengt starfi sjúkraþjálfara. Mikið verður lagt upp úr verklegri kennslu og hreyfingu og er mælt með því að klæða sig í viðeigandi fatnað og skóbúnað.
Kennari
- Sóley Ásta Lóudóttir, meistaranemi í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Farið verður yfir þætti í skurðlækningum, bæði almennum skurðlækningum en einnig með áherslu á hjarta- og heilaskurðlækningar. Einnig verður farið yfir grunnþætti þess að sauma og hverju skurðlæknar þurfa að huga að dags daglega.
Athugið að sýnd eru myndbönd af skurðaðgerðum í námskeiðinu og það því ekki fyrir viðkvæma.
Kennarar
- Carlos Magnús Rabelo, nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands
- Haraldur Orri Arnarsson, nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Hvað er sumt af því áhugaverðasta sem er að gerast í alþjóðastjórnmálunum?
Í þessu örnámskeiði skoðum við heimsmyndina og hvað er að gerast milli ríkja og leiðtoga.
Við ræðum meðal annars hvað það þýðir að ríki sé lýðræðisríki og hvað felst í hugmyndinni um lýðræði.
Við veltum einnig fyrir okkur hvernig samskiptum ríkja er háttað, hvaða hagsmuni þau hafa og hvort stór ríki eins og Bandaríkin og Kína, eða sterkustu leiðtogarnir eigi alltaf að ráða ferðinni
Kennari
- Gunnar Sigvaldason, doktorsnemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Hvað eru stjörnuhröp? Hafa loftsteinar fallið á Jörðina og ef svo, gæti það gerst aftur? Í námskeiðinu förum við fyrst í ferðalag um stjörnuhiminninn og síðan út í sólkerfið okkar. Við stoppum á skrítnum stöðum, veltum fyrir okkur hvort einhvers staðar gæti leynst líf fyrir utan Jörðina.
Kennari
- Sævar Helgi Bragason, jarðfræðingur, bókahöfundur, dagskrárgerðarmaður og margverðlaunaður vísindamiðlari
Námskeið í 90 mín
Hvað eru álfar og hvað er huldufólk? Hver er munurinn? Hvað vitum við um þau? Hvernig birtast álfar og huldufólk í bíómyndum, þjóðsögum, bókmenntum og tölvuleikjum?Í þessu námskeiði munum við skoða álfa og huldufólk út frá ýmsum sjónarhornum. Við munum velta fyrir okkur hvað það er sem einkennir þau, ræða um helstu birtingarmyndir þeirra og velta því fyrir okkur hvernig við þekkjum þau í nútímanum.
Þá munu nemendur búa til sína eigin álfa og huldufólk og sögu um þau. Nemendur hafa val um hvernig þau framkvæma verkefnið, taka upp stutta kvikmynd, skrifa sögu eða teiknimyndasögu, búa til plakat, eða setja hugmyndir niður á blað og kynna.
Kennarar
- Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur
- Guðný Jónsdóttir, þjóðfræðingur
Námskeið í 90 mín
Skemmtilegt námskeið þar sem þátttakendur læra einfaldar aðferðir við að lifa af úti í náttúrunni í anda Robinsons Crusoe. Það þarf hugvit og áræði til þess að lifa af við erfiðar aðstæður.
Nemendur fá ýmis tækifæri til að kanna náttúruna í gegnum leik og starf. Farið verður í greiningu á lífríki nærumhverfisins, svo sem vatnalífvera, plantna og fugla. Farið verður í leiki sem efla samstöðu hópsins. Í lokin tendra þátttakendur varðeld sem notaður verður til þess að búa til gotterí.
Spennandi og skemmtilegt námskeið fyrir þá sem vilja læra að bjarga sér.
Kennslan fer fram úti og því mjög mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og vera í viðeigandi skóbúnaði.
Kennarar
- Ingveldur Ævarsdóttir, M.Ed í grunskólakennarafræði og í viðbótarnámi um útimenntun, ferðalög og útilíf við Háskóla Íslands
- Ævar Aðalsteinsson, M.Ed í Tómstunda- og félagsmálafræði og verkefnastjóri í útinámi við Háskóla Íslands
Þema í 180 mín
Ferðalag á framandi tungumálum: Tungumáladagur í Veröld - Húsi Vigdísar.
Nemendur fá að upplifa töfrana í samskiptum yfir og milli landamæra. Komdu og skoðaðu fegurð tungumála og lærðu grunnatriði í frönsku, þýsku, pólsku, latínu, spænsku og japönsku í spennandi tungumálamaraþoni.
Kennarar
- Sérfræðingar Mála- og menningardeildar Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Í tölvutækni og forritun munum við fara yfir helstu hugtök í forritunarmálum (if-, while- og forlykkjur o.fl.) og við munum beita þessari þekkingu á og æfa okkur með forritunarmálinu Scratch.
Scratch er skemmtilegt, fræðandi og sjónrænt forritunarmál og er tilvalið fyrir einstaklinga sem vilja byrja og skilja betur forritun.
Ada, Hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni við Háskóla Íslands, kemur að námskeiðinu.
Kennarar
- María Rós Kaldalóns, BS nemandi í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands
Þema í 180 mín
Á þessum þemadegi munum við fara í vettvangsferð í Grósku hugmyndahús og suðupott nýsköpunar á Íslandi.
Í Grósku munum við fara í vettvangsferð í höfuðstöðvar CCP sem er stærsta tölvuleikjafyrirtæki á Íslandi. Í CCP fáum við að kynnast fyrirtækinu, vinnuaðstöðu og að hitta fólk sem vinnur við tölvuleikjagerð.
Þá skoðum við einnig aðstöðu og helstu byggingar Tölvunarfræðideildar Háskóla Íslands í Tæknigarði og Grósku.
Kennarar
- María Rós Kaldalóns, BS nemandi í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Íslands
- Nanna Kristjánsdóttir, BS í hagnýttri stærðfræði við Háskóla Íslands
Námskeið í 90 mín
Hvað er DNA og hvernig mótar það hver við erum? Á þessum þemadegi fá þátttakendur að skyggnast inn í heim erfðafræðinnar í gegnum fræðslu og opnar umræður, þar sem við veltum fyrir okkur stórum spurningum um erfðir, hvað það er sem gerir okkur einstök og framtíðina í lífvísindum.
Í verklegri tilraun einangrar hver og einn sitt eigið DNA og sér það með berum augum! Að lokum fáum við að rölta um húsakynni Íslenskrar erfðagreiningar og kynnast betur því spennandi starfi sem þar fer fram.
Kennarar
- Guðrún M. Sigurbergsdóttir, líffræðingur hjá Íslenskri erfðagreiningu og verkefnastjóri hjá NýMennt Háskóla Íslands
- Silja Rut Sigurfinnsdóttir, lífeindafræðingur og gæðafulltrúi hjá Íslenskri erfðagreiningu
Þema í 180 mín
Skemmtilegt þema þar sem þátttakendur læra einfaldar aðferðir við að lifa af úti í náttúrunni í anda Robinsons Crusoe. Það þarf hugvit og áræði til þess að lifa af við erfiðar aðstæður. Í þema verður tíminn notaður úti til að kanna náttúruna í gegnum leik og starf. Nemendur fá að umgangast opinn eld og nýta hann m.a. til eldamennsku. Einnig förum við í þrautir og byggjum skýli eða skjól úr náttúrulegum efnum.
Spennandi og skemmtilegt þema fyrir þá sem vilja læra að bjarga sér.
Kennsla fer fram úti og því mjög mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og vera í viðeigandi skóbúnaði.
Kennarar
- Ingveldur Ævarsdóttir, M.Ed í grunskólakennarafræði og í viðbótarnámi um útimenntun, ferðalög og útilíf við Háskóla Íslands
- Ævar Aðalsteinsson, M.Ed í tómstunda- og félagsmálafræði og verkefnastjóri í útinámi við Háskóla Íslands
