Hvernig getum við smíðað okkar eigin valslöngvu? Hvernig getum við látið hana kasta sem lengst og af sem mestum krafti?

Nemendur fá efni og tilbúinn ramma til að setja saman sína eigin valslöngvu. Þau vinna í litlum hópum, prófa sig áfram með hönnunina og sérsníða valslöngvuna sína til að gera hana sem öflugasta.

Í lokin verður skotkeppni milli liða þar sem hóparnir prófa hvaða valslöngva kastar lengst.

Valslöngva
Share