Það var líf og fjör á háskólasvæðinu í dag þegar nemendur Háskóla unga fólksins mættu til leiks fullir af orku, forvitni og sólskinsbrosum sem lýstu upp daginn. 

Meðal spennandi námskeiða dagsins voru, Næringarfræði, Lögfræði, Efnafræði, Íþrótta- og heilsufræði, Gervigreind, Heimsmarkmiðin í mynd, Mið-Austurlandafræði, Stjörnufræði, Frumkvöðlar framtíðarinnar – nýsköpun í verki og Blaða- og fréttamennska.

Það er ljóst að við höfum fengið til okkar áhugasaman, hugmyndaríkan og skemmtilegan hóp í sumar og það er sannkölluð ánægja að fylgjast með okkar ungu nemendum takast á við fjölbreytt viðfangsefni af krafti og gleði.

Á morgun fimmtudag er þemadagur og þá mæta sumir hópar á nýja staði í fyrramálið og hafa foreldrar og forráðamenn fengið tölvupóst með upplýsingum um fyrirkomulagið. Endilega fylgist vel með pósthólfinu.

Eins og áður var Kristinn Ingvarsson, ljósmyndari Háskólans, á ferðinni og fangaði stemninguna. Allar myndir sem teknar verða í vikunni rata í þetta myndaalbúm. 

Við þökkum kærlega fyrir frábæran dag og hlökkum til að sjá ykkur aftur hress og tilbúin í ný ævintýri í fyrramálið. 

Image