Síðasti dagurinn í Háskóla unga fólksins var einstaklega fjölbreyttur, þar sem nemendur fengu að kynnast enn fleiri námskeiðum og fræðigreinum.

Nemendur sóttu meðal annars námskeið í afbrotafræði, leiklist, íslensku táknmáli og skurðlækningum. Þá spreyttu þau sig einnig á því að hanna vatnseldflaugar og skjóta þeim hátt í loft upp, skoða himingeiminn með Stjörnu-Sævari, grúska í gervigreind og reyna að sigra tölvuna, og læra um tré, skóga og náttúruna, svo fátt eitt sé nefnt.

Í hádeginu var slegið upp glæsilegri lokahátíð með grillveislu, uppblásnum leiktækjum og skemmtun þar sem sannkallað sumarstuð ríkti. Eftir grillmatinn nutu nemendur þess að leika sér í hoppuköstulum, spila körfubolta, prófa fótboltaspil, keppa í kornholu og sleikja sólina í frábæru sumarveðri.  

Við þökkum þeim ríflega 230 nemendum sem sóttu Háskóla unga fólkins í ár kærlega fyrir frábæra samveru. Við vonum að þið hafið farið heim fróðari en þið komuð, og notið þess að kynnast háskólasamfélaginu, vísindamönnum HÍ, starfsfólki og fræðunum öllum.

Þið eruð frábær og framtíðin er björt með svona öflugu og áhugasömu ungu fólki.

Hjartans þakkir fyrir samveruna!

Sjá myndir frá starfi skólans dagana 10.–12. júní 2026. Fleiri myndir verða settar í albúmið á næstu dögum.

 

Lokahátíð Háskóli unga fólksins hoppukastali
Share