Skráningu er nú formlega lokið í Háskóla unga fólksins 2026. Viðtökurnar hafa verið frábærar, og ríflega 230 hressir krakkar á aldrinum 12–14 ára eru skráðir til leiks og tilbúnir að kafa ofan í leyndardóma vísindanna dagana 10.–12. júní.

Háskóli unga fólksins fer nú inn í sitt 22. starfsár og má með sanni segja að fræði, forvitni og gleði muni fara hönd í hönd næstu daga. Markmið skólans er sem fyrr að kynna fjölbreytt fræði fyrir ungu kynslóðinni út frá spennandi sjónarhornum, þar sem lifandi miðlun og virk þátttaka nemenda eru í fyrirrúmi.

Nemendur fengu að velja á milli 14 fjölbreyttra stundatafla með um 30 ólíkum námskeiðum. Boðið er upp á efni frá öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands, félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum og verkfræði-, raun- og náttúruvísindum, auk þverfræðilegra greina. Krakkarnir munu því spreyta sig á öllu mögulegu, allt frá því að hanna vatnseldflaugar og skjóta þeim upp í loft og að skoða undir húddið á gervigreind, yfir í að læra íslenskt táknmál, kíkja inn í heim skurðlækninga, prófa styrk og getu í íþrótta- og heilsufræði, fá innsýn í lögfræði, búa til lyfjaform í lyfjafræði og margt fleira. 

Kennsla fer aðallega fram í nýrri byggingu Háskóla Íslands, Sögu, og munu nemendur sækja tvö námskeið á dag nema fyrsta daginn, miðvikudaginn 10. júní, en eftir skólasetningu sem er kl. 13:00 - 13:30 verja nemendur öllum tímanum í sérstöku þema og fara þá margir eitthvað á stúfana út fyrir skólastofuna og lýkur deginum svo kl. 16. 

Fimmtudaginn 11. júní hefst kennslan kl. 9:00 og stendur til kl. 12:30. Fullt af fjölbreyttum vísindatilraunum og skapandi vinnu.

Föstudaginn 12. júní kl. 9:00–13:30 er síðasti dagurinn, en eftir fróðlegan morgun lýkur skólanum svo með glæsilegri lokahátíð og grillveislu í hádeginu þar sem allir fagna saman frábærum vísindadögum. 

Fylgist með fjörinu!Við hvetjum foreldra og aðra áhugasama til að fylgjast vel með lífinu í skólanum, en við munum birta myndir og fréttir af fjörinu jafnóðum hér á vefsíðunni og á Facebook-síðu Háskóla unga fólksins.

Við hlökkum mikið til að taka á móti þessum flotta hópi á miðvikudaginn!

Íþrótta- og heilsufræði
Share