Opnað verður fyrir skráningar í Háskóla unga fólksins þriðjudaginn 16. maí 2023 kl. 15.00. Skráning fer eingöngu fram rafrænt hér á heimasíðu skólans.
Skólinn stendur yfir dagana 12 - 16. júní frá kl. 9.00 - 12.30 og kostar kr. 25.000. Í ár geta þrír árgangar skráð sig, árgangar 2009, 2010 og 2011 (12-14 ára), þ.e. nemendur í 6. - 8. bekk grunnskóla.
Sem fyrr verða í boði námskeið af öllum sviðum Háskóla Íslands, í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum og þverfræðilegum greinum.
Hægt verður að velja á milli stundataflna og verður allt vel auglýst á heimasíðu skólans sem og þau námskeið sem verða í boði.
Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
Image
![](/sites/ung.hi.is/files/styles/photo_small/public/2023-04/kri_huf_220613_070.jpg?h=a2a2f083&itok=TvQaKGh1 479w, /sites/ung.hi.is/files/styles/photo_medium/public/2023-04/kri_huf_220613_070.jpg?h=a2a2f083&itok=za3NW2y4 480w, /sites/ung.hi.is/files/styles/photo_large/public/2023-04/kri_huf_220613_070.jpg?h=a2a2f083&itok=86OZ1ZY6 768w, /sites/ung.hi.is/files/styles/photo_extra_large/public/2023-04/kri_huf_220613_070.jpg?h=a2a2f083&itok=usiYLFfl 1024w, /sites/ung.hi.is/files/styles/photo_full/public/2023-04/kri_huf_220613_070.jpg?h=a2a2f083&itok=-NBeM9MA 1440w)